inuvet – Travel 2ml og 5ml

Olía sem inniheldur 15 % CBD isolate, L-tryptophan (undanfari serótóníns og melatóníns.) Burðarefni – MCT olía.

Ekki nota beint fyrir og eftir svæfingu né fyrir aðgerðir. Ekki nota á meðan á meðgöngu stendur og á meðan afkvæmi eru á spena . Til notkunar hjá köttum og hundum frá 6 mánaða aldri.

Travel er blanda af róandi innihaldsefnum og efnum sem styðja við meltinguna, sérstaklega valin til að hjálpa gæludýrum að líða betur á ferðalögum. Ferðaveiki hjá dýrum tengist oft bæði ógleði og streitu og því er mikilvægt að styðja bæði við meltingu og taugakerfi.

  • CBD hjálpar dýrum að róa sig með því að hafa áhrif á endókannabínóíðkerfi þeirra (ECS), sem stýrir streitu, skapi og hjartslætti. Það hefur áhrif á serótónínviðtaka í heilanum (svokallaða „hamingjuhormónið“).
  • Engifer er vel þekkt fyrir að styðja við meltinguna með því að hafa áhrif á taugaboð sem tengjast ógleði.
  • Melísa (e. balm mint oil) hjálpar til við að draga úr kvíða.
  • L-tryptófan er nauðsynleg amínósýra og undanfari serótóníns og melatóníns.
  • L-theanine er náttúruleg amínósýra sem finnst aðallega í grænu te-i. Klínískar rannsóknir benda til þess að L-thenanine hafi m.a. jákvæð áhrif á streitutengda hegðun.

Inniheldur ekki terpínóíða né THC. Laust við dýraafurðir. Einungis fáanlegt hjá dýralæknum. Geymið utan seilingar barna.
Notkun: 1 dropi per 5kg 2x á dag borinn á tannhold dýrsins.

Framleitt í Þýskalandi fyrir hunda og ketti.

2 ml. uþb. 40 dropar – Vnr. 12170001

5 ml. uþb. 100 dropar – Vnr. 12170002 (ekki til á lager)

 

Lesefni
Vörunúmer: 12170002-1 Flokkur: Dýrategundir: ,