Canius Plus
Canius Plus er einstakt bætiefni á heimsvísu sem styður við jafnvægi meltingarflórunnar í meltingarfærum hunda. Bætiefnið inniheldur mjólkursýrugerla sem teknir eru úr meltingarfærum annarra hunda með sterka maga. Canius Plus er eina bætiefnið með slíka samsetningu og er talsvert áhrifaríkara en hefðbundin meltingarbætiefni hunda.
Vellíðan frá hundum – til hunda
Canius Plus er þróað eftir finnsku hugviti sem hefur verið í vinnslu til fjölda ára. Finnskar rannsóknir leiddu í ljós að hundar sem glímdu við linar hægðir eða óþægindi í meltingarfærum voru með minna magn mjólkursýrugerla í meltingarvegi sínum en hundar sem glímdu ekki við slík vandamál.
Þessi einstaka formúla inniheldur þrjá vandlega valda og lifandi mjólkursýrugerlastofna (lactobacillus) úr meltingarflóru heilbrigðra hunda sem tryggt er að þrífist einstaklega vel á nýjum stað.
Auðvelt í notkun – bragðgott duft sem má blanda við mat eða drykk.
Mæliskeið fylgir.
Innihald:
Gerjuð mjólk, kalsíumkarbónat, maltódextrín.
Lactobacillus fermentum NCIMB 41636, Lactobacillus plantarum NCIMB 41638 og Lactobacillus rhamnosus NCIMB 41640 (1a0001) samtals 1×1012 CFU/kg, kísill (E551b).
Efnainnihald:
Aska 40 %, hráprótein 21 %, hráfita 1 %, hrátrefjar 1 %, laktósi 20 %, kalk 140 mg/g, fosfór 5 mg/g, natríum 3,5 mg/g.
Notkunarleiðbeiningar:
1-3 kg: 1/2 mæliskeið einu sinni á dag
3 kg og þyngri: 1 mæliskeið einu sinni á dag
Notkun vegna sértækra þarfa:
Tímabundin meltingarvandamál: 30 dagar (t.d. niðurgangur, uppþemba eða eftir lyfjagjöf)
Endurtekin meltingarvandamál: Gefa eftir þörfum
Hvolpafullar og mjólkandi tíkur: Hefja notkun fyrir getnað og halda áfram á meðan hvolpar eru á spena.
Hvolpar: Hefja notkun þegar föst fæða er kynnt og halda áfram í 30 daga á nýju heimili.
Flestir hundar finna fyrir bata innan 2-4 daga frá því notkun Canius Plus hefst.
Til að ná langvarandri árangri er mælt með að halda áfram notkun í 30 daga, sem telst eitt meðferðartímabil. Canius Plus hentar einnig til langtímanotkunar.
Ein 30 g dós af Canius Plus dugar í u.þ.b. 35 daga fyrir hunda sem eru þyngri en 3 kg og u.þ.b. 70 daga fyrir hunda sem vega 1-3 kg.
Geymist í kæli.




