11. nóvember 2024
Tvær spennandi nýjungar fyrir gæludýr fást nú hjá Parlogis.
Dermoscent húðolíur sem dýralæknar mæla með, frá franska fyrirtækinu Nextmune.
Dermoscent – Essential 6® húðolía og Dermoscent – Atop 7® húðolía
CBD olíur fyrir hunda og ketti frá þýska fyrirtækinu INUVET. INUVET selur eingöngu vörur sem eru 100 % náttúrulegar og reynast mörgum dýrum vel sérstaklega þeim sem þola illa hefðbundin lyf og bætiefni.
Calmin forte 10 % 2ml og 5 ml.
1. nóvember 2024
Dýraheilsa hefur hafið sölu á mest selda liðbætiefni fyrir hunda í Bretlandi – YuMOVE ADVANCE 360. Lesa má nánar um YuMOVE ADVANCE hér.
17. október 2024
Ný heimasíða Dýraheilsu fór í loftið
9. september 2024
Nú fást eftirfarandi vörur og dýralyf hjá Parlogis:
Puppyboost Vnr. 42 39 97
Puppyboost inniheldur orkuríka viðbótarnæringu fyrir nýgotna hvolpa og kettlinga.
Metrobactin vet. 250 mg 10 töflur Vnr. 38 52 48
Metrobactin inniheldur metrónidazol 250 mg – 10 töflur. Ábendingar eru meðferð við sýkingum í meltingarvegi af völdum Giardia spp. og Clostridia spp. (þ.e. C. perfringens eða C. difficile). Meðferð við sýkingum í þvagfærum, munnholi, hálsi og húð af völdum algjörlega loftfirrtra baktería (t.d. Clostridia spp.) sem eru næmar fyrir metronidazóli.
Startvac 50 ml / 25 skammtar Vnr. 53 42 45
NÝ PAKKNINGASTÆRÐ
Startvac er bóluefni.
Til hjarðónæmingar hjá heilbrigðum kúm og kvígum, hjá hjörðum mjólkurkúa með endurtekin júgurbólguvandamál, til að draga úr tíðni duldrar júgurbólgu og tíðni og alvarleika klínískra einkenna sýnilegrar júgurbólgu af völdum Staphylococcus aureus, kólíforma og kóagúlasa neikvæðra stafýlókokka.
Pantanir: 590 0200 – pantanir@parlogis.is